Do not take life to serious, you´ll never get out of it alive!!

Save a horse, ride a cowboy!! =)

10.01.2007 00:06:02 / asdishelga

Nýtt nýtt

Hæj, Ætla að reyna mig á nýju bloggi ... Það er http://asdishelga.bloggar.is Möst að kíkja við.. er að vinna í þessu, lofa að vera duglegri að blogga þar ;) er komin með netið í tölvuna mína og alles mar !! :D

» 2 hafa sagt sína skoðun

24.12.2006 16:20:15 / asdishelga

!!GLEÐILEG JÓL!!

Gleðileg jól allir saman og þakka frábært ár sem er að líða undir lok! Vonandi hitti ég alla sem oftast á nýju ári! Hafið það sem allra best yfir hátíðarnar :) Jólakveðja Ásdís Helga

» 6 hafa sagt sína skoðun

21.12.2006 19:32:11 / asdishelga

Ætli það sé jólahjól :)

Jæja, þá er komið að því, blogggggg :D

Sko málið er að ég er búin að vera í haustfríi eins og hestarnir mínir, en nú eru þeir að týnast á hús og þá ætla ég að byrja aftur ;) En bjútíið við að blogga svona sjaldan að það hefur haugur að nýju gerst í millitíðinni hehe

Til að byrja á byrjuninni þá kláraði ég mína vinnu á kárahnjúkum 15.des búhú, búið að vera frábært að vinna þarna en auðvitað var tekinn lokahnykkur á dæmið, Suðurverk bauð öllum suður á fancy jólahlaðborð... Það var geggjað gaman og aldrei að vita nema ég setji inn myndir þaðan, við stelpurnar gerðum okkar allra besta að vera eins og mestu prinsessur ;) ég setti meira segja á mig neglur ... jebb!!

En svo flaug ég heim (draugþunn væntanlega) og lenti á egs um fimmleytið og já steig beint uppí bíl til mömmu og ármanns og keyrðum norður til akureyrar ... Tilgangur ferðarinnar var margvís, hjá mér aðallega til að sækja Hlyn töffara, búið að redda öllu, fengum Landcruiser lánaðann hjá afa og hann fékk Fordinn í staðinn (of stór og ég má ekki keyra hann) og kerru hjá Bigga og allt klárt bara og ætluðum heim með gaurinn í gær en neinei auðvitað var spáð svo brjáluðum vindi að við máttum gjöra svo vel að skilja hann eftir... ooooooog ég, grey ég, þarf að yfirgefa litluömoskvu sirka á annan í jólum og bruna norður fram að áramótum, koma heim rétt yfir áramótin og bruna beint norður aftur... hvar er jólaréttlætið í þessu?? Sjúff, það er eins gott að maður komist aðeins á tjúttið fyrir norðan hehe :) En ég get þá þjálfað bæði Tristan og Hlyn sjálf (og svo það sé á hreinu þá eru þetta gaurarnir sem koma með mér á Hóla og þurfa að vera komnir í form þegar ég kem þangað 9.jan og hafa báðir verið í þjálfun í des). Jebb jebb ...

Út í allt aðra sálma, ég er nebbla svo ógeðslega heppin eitthvað þessa dagana, þá bræddi bílelskan mín næstum því úr sér í gær... Ármann var að keyra hann heim frá egs og hann bara stoppaði á skarðinu. Vatnskassin var semsagt alveg galtómur og mótorinn ónýtur, Great!! Og ég sem hafði áhyggjur af elskunni minni og bað strákana a kárahnjúkum að líta yfir hann fyrir mig nóttina áður en ég fór, sem og þeir gerðu, voru með hann í þrjá tíma og ég bað þá að líta á vatnið en eitthvað hefur farið framhjá nötnu auga þeirra ... damn!! ;) en jæja, pabbi þarf þá að skipta um mótor fyrir mig og þar fjúka nokkrir hólaþúsundkallar og só bí it og hann verður vonandi reddí þegar ég þarf að þjóta norður á ný :haha:

Hmmm, og svo út í enn allt aðra sálma, ýmislegt búið að ske núna undanfarna daga, ég fór með pabba og strákunum upp á skarð í dag á sleða og vá það var hrikalega gaman maður, vorum með keppnissleðann hans ármanns og stóra hans pabba og skiptumst á (sæþórs er ekki kominn til landsins) og shitturinn titturinn hvað konan verður stirð og slæm á morgun, þetta er ekki beint líkt neinu sem ég hef verið að gera í haust, fékk meira segja smá strengi eftir þrjá reiðtúra fyrir norðan, neðri hlutinn greinilega ekki í sama formi og vanalega .... en ur því bætist núna :lol:

Maaaaaatur var kallað ... Verð að þjóta :D

Og aftur, shit hehe Hilzen Ásdís


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.11.2006 12:34:43 / asdishelga

frí frí og aftur frí!!! :D

Hjéllúú mæn gúd píbol!! ;) nú er maður á heimaslóðum, kannski ég verði í kúala lumpur í næsta bloggi ... spennandi að sjá :haha:

Ég kom heim í frí síðasta laugardag og rauk beint á geggjað Queen show í Egilsbúð.. megafjör!! Var ekki alveg upp á mitt allra besta þarna því ég var á morgunvakt um morguninn og reis úr rekkju um 5 leytið .. hehe en maður er bara einu sinnu ungur og ef ekki nú þá hvenær .. hehe

En Costa Del Sol ferðin var í einu orði sagt GEGGJUÐ!!!

Út í allt aðra sálma *HROSS* !! Ég var að enda við að redda mér stíu undir aukahrossin mín í vor, fékk 2ja hesta stíu hjá allsherjarsnillingnum Gunna í Víðinesi og það gæti varla verið betra!! Eins stutt frá Hólum og möguleiki er á held ég, næstum í göngufæri, mjög sanngjarnt verð og allt í topplagi!!! :D mjög ánægð kona hér á ferð ..

En ég ætla að fara að hendast í bað og liggja þar heillengi og chilla ...

Er tómust í heiminum ... enda bloggið á snilldarljóskubrandara í tilefni af því að ég var í klippingu á mánudag og lýsti það enn meir ...

Ljóskan gekk inn i búðina og sagði við afgreiðslukonuna: "Ég vil fá að skila þessum klósettbursta hérna". Afgreiðslukonan spurði þá: "Hva, af hverju, er hann eitthvað gallaður?". "Nei" Sagði ljóskan þá, "mér finnst bara betra að nota klósettpappír!"

HAHAHAHAHAHAHAHAHA, ég meig næstum í brækurnar þegar ég las hann fyrst... uppáhaldsbrandarinn minn um þessar mundir...

Bið að heilsykkur!! Ásdís Helga


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.10.2006 17:13:49 / asdishelga

costa del sol mar!!

Jaeja gott folk ... tha er konan a costa i solarfrii !! Shit hvad thad er ljuft madur, frabaert vedur og buin ad brenna adeins, hehe vard allt i einu eins og tomatur i framan i fyrradag en thad er strax eiginlega buid ad breytast i brunku :) erum bunar ad gera (er med dionu minni) helling, komum seint a fimmtudagskveldid sidasta ut og erum bunar ad drekka shit mikinn bjor!! med tilheyrandi tynnku i solbadi vid sundlaugina of kors!! skruppum i tivoli i gaer, huge daemi sko!! Forum serstaklega i eitt taeki sem vert er ad segja fra, svona sulu 60 metra upp i loftid, heillengi a leidinni upp og mar vard hraeddari og hraeddari vid hvern meter og svo stopp smastund og svo fjuff nidur a trem sekundum eda svo, fokkinei hvad eg var hraedd, oskradi rosalega, tetta var eiginlega bara ogedslegt en samt svona doldid gaman eftir a ...

erum ad fara ad setjast a sundlaugarbarinn og fa okkur fyrsta bjorinn i dag (sennilega met) ... nokkrir timburmenn i heimsokn .. hehe Bid bara ad heilsa ykkur og reyni ad blogga sem fyrst aftur, fer reyndar beint upp a hnjukana tegar eg kem heim i niu daga og svo kemst eg heim a nesk i sex daga og a netid ;)

reyndar er thetta ekki bara buid afd vera yndislegt thvi veskinu minu var stolid a fostudagskveldid med doldid af peningum i og ollum kortunum og simanum minum, buhu !! thannig ad eg er simalaus en aetla ad reyna ad kaupa mer annan sima i frihofninni en thannig ad eg er simalaus!!

Adios amigos !! Asdis


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.08.2006 19:56:15 / asdishelga

Góóóóóðan dag góðan dag glens og grín það er mitt fag ....

hopp og hí trallalí, upp á nefið nú ég sný .. blabla man ekki meira .. jæja á ég einhverja lesendur eftir ?? ;) hehe

ákvað snöggvast að koma með nýjustu fréttir .. dúmm dúmm dúmm!! Hmm, hvað er annars að frétta? Ein mynd til að lífga upp á daginn

Allavega er efst á baugi að ég skrapp í eitt lítið inntökupróf (reyndar var það RISAHUGE stórt stresspróf) sem hefði getað gengið gjörsamlega alveg veeeel eða hræðilega ... í stuttu orði sagt gekk það nokkuð veeeel .. það vel allavega að mér var hleypt inn, þ.e mér og Hlynsa mínum og Tristan gaur, ætlaði með Kjarna frá Árgerði en það klikkaði þannig að kippt var í nokkra stóra spotta hægri vinstri og mér var í stuttu orði sagt lánað Tristan frá Árgerði, 6v gullfallegan stóðhest sem stóð sig alveg hreint með prýði í inntökuprófinu :) til hamingju ég, útskrifast semsagt sem reiðkennari C næsta vor (fer auðvitað ekkert að falla hehe)..

Næst á baugi er að ég er að yfirgefa sveitina nú um mánaðarmótin og fara að vinna á Kárahnjúkum og jájá eins og margir margir hafa sagt undanfarið, ég skal passa að láta ekki buffa mig ;) hehe er að fara að stússast í eldhúsinu og meika meget money!!!

Hmm, man ekki fleir í bili, bið að heilsa öllum píum og gaurum í bili og endilega verið áfram dugleg að vita ef þið kíkið annars slagið hingað, þá drattast ég örugglega til að skrifa oftar sökum samviskubits hehe ;)

Önnur hrikalega fyndin mynd, boðskapurinn er; Bíddu, var mér ekki alltaf sagt að segja sannleikann??

Hilzen Ásdís


» 12 hafa sagt sína skoðun

17.07.2006 20:58:12 / asdishelga

Guten Tag

Hjéllú ...

Dæræræ, ég er ekkert af jafna mig af bloggletisjúkdómnum, get svo svarið að þetta er að verða vandamál. Hef ekki einu sinnu fornaldartölvuafsökun lengur því það er kominn nýr gæðagripur í Litla-Garðinn því fornaldarvinur minn gaf upp öndina! Guð blessi minningu hennar :)

Margt og mikið búið að ske, shit hvenær bloggaði ég eila síðast? Æjá rétt fyrir LM, jæja stutt yfirlit yfir undanfarinn mánuð eða svo:

- Landsmótið gekk ágætlega hreint, við Stirnir áttum samt ekki sjéns í mótorhjólin þarna en ég var nokkuð sátt og ekki á hverjum degi sem maður getur horft á sjálfan sig í sjónvarpinu meðan maður sýnir (risaskjárinn) ;) skemmtilegt það!!             

- Djamm á Landsmótinu var svona upp og niður, man sumt og annað ekki og biðst afsökunar þá sem ég hitti og man ekki eftir, þá er ég að meina föstudagskvöldið, guði sé lof þá var mér bara komið upp í tjald á skikkanlegum tíma, svona um miðnætti, bévítans hænuhaus endalaust, var edrú + tveir vondir afþynnkunarbreeserar á laugardagskveldið og skemmti mér alveg hreint konunglega ;)                    

- Eins og gefur að skilja þá var ég nettgjörónýt á laugardeginum úr þynnku en eins og áður sagði þá hætti ég að drekka c.a á miðnætti á föst.kvöld eða svo en eins og miskunnarsami samverjinn þá fór ég með Ármanni brósa (sem btw drakk til 7 á sunnudagsmorguninn) á sunnudeginum um fjögur leytið að blása hjá löggunni, ég þá eldhress en fann aðeins ennþá fyrir föst.kveldinu og Ármann gjörþunnur og glær og viti menn, ég mátti gjöra svo vel að bíða í svona tvo tíma en Ármann í TOPPlagi... Halllllllló?? Meikar það sens eða??  

- Jújújú, ég og pabbi voru að kaupa okkur hest um daginn til þess að fara með í fjórgangarann á Hólum, gripurinn heitir Hlynur frá Hofi undan Hlökk frá Hólum og Straum frá Vogum. Hann er 7.v og hörkuefnilegur. Eigum samt sem áður dáldið í land með að vera frábær, hann er mjög svo viljugur og ansi spenntur þannig að í hita leiksins vill brokk og fet týnast en ég veit að það er þarna bakvið, þrusudjöfulsinsbrokk og skítsæmilegt fet og það er bara að finna réttu aðferðina að því ;)                            

- Var í aðgerð á hnénu enn og aftur á þriðjudag, það var eitthvert skrúfuhelvíti sem fékk leið á hnénu á mér og vildi komast út og reyndi því að brjótast út þannig að ég varð að fara í brottnámsskrúfuaðgerð til að gefa skrúfuhelvítinu frelsi og taka vikufrí á Neskarnaum frá hestunum mínum. Var semsagt að koma aftur norður í dag... djammaði slatta með Margréti skvísu og fleirum og var það magnað ;) lá svo mestallan tímann með tærnar og hnéð upp í loft og slakaði á ... er frekar svona endurnærð núna og helst of mikið sofin ef eitthvað er... sjúff ;)

Jæja er þetta ekki að verða ágætt? Inntökuprófið er 23.ágúst og ef guð lofar þá gengur það vel ... nú er bara að setja undirbúning á Hlyn og Kjarna í botn :D

Bið að heilsykkur!! Ásdís sem er ekki lengur með lausa skrúfu ... híhí, gaman að geta sagst vera með lausa skrúfu og vera ekki að plata ... það geta það ekki allir .. haha


» 6 hafa sagt sína skoðun

21.06.2006 22:53:17 / asdishelga

Bloggleti út í rauðan dauðann...

Jæja, ætli maður geti drepist úr bloggleti? Jamm jamm og já, þá er ykkur öllum boðið í jarðaför með erfidrykkju og partýi á eftir ;)

Margt og mikið og allt og lítið búið að ské, geggjað á 17.júní, Día beib kom norður og beilaði á balli með Stuðmönnum, Julia beibí og co sáu um fjörið þarna með mér og var það mikið gaman!! Er að fara að keppa á landsmóti á Stirni kallinum næsta þriðjudag rétt fyrir kvöldmat, allir boðnir að glápa ...

Er auk bloggletisdauða að deyja þreytudauða þannig að þetta verður stutt í dag...

EIN SPURNING!!

Er ekki kominn stemmari fyrir LM????

Balladagskrá: Fim. Geirmundur besti og karlakór Heimis

Fös. Todmobile, YEAH

Lau. The greatest band in the world Papanir!!!!!!!!!!!

Þetta verður illa svakalega gaman, sama hvernig veður verður, maður býr sig bara eftir veðri, við búum á Íslandi og ættum að vera búin að læra að vera við öllu búin ... hehe

Sjáumst á Landsmóti töffaða fólk eða sjáumst ekki á Landsmóti glataða fólk sem kemur ekki ... múhahaha (svefngalsi að tala þarna)

Er hætt.... ADJÖ (vitnun í Sögu mína)


» 8 hafa sagt sína skoðun

25.05.2006 22:23:32 / asdishelga

Allt að skééééé!!! Útskrift og læti marr

Jæja pæja ... þá er komin opinberlega orðin tamningarmaður og þjálfari, finnst samt eila meira gaman að vera þjálfari ;) hehehe

En svo ég byrji nú á byrjuninni þá fékk ég náttla úr prófunum þarna á laugardaginn og það var mjög gott, gott og ekki alveg nógu gott fyrir þ.e.a.s þá þrjá hesta sem ég fór í próf með ;) hehe fékk 9,5 fyrir Stirni frá Halldórsstöðum sem er að verða djöfulli flottur keppnishestur og mun sjást á brautinni í sumar, 8,0 fyrir Fregn frá Árgerði 6v. undan Svarti Unalæk, falleg meri með ennþá allavega crap tölt, og svo 7,5 fyrir Glym sem var bara dagsform en sossem fínt, er samt alveg föst á að ég hefði auðveldlega fengið 8,5 á honum á góðum degi, minn er náttla 5v. niðurnjörvaður og agaður graðhestur sem er að springa úr vorgleði .. ekki auðveldasta viðfangsefnið ;) hehe en það gerði með 9,0 fyrir dagbókarhelvítið 8,43 í aðaleinkunn fyrir þjálfunarhesta! Mjög sátt við það...

Svo var heljarinnar útskriftarpartý á Þingeyrum hjá Karen og co og það var frábært, grill, eurovision, fullt af bollu, heitur pottur, músik + gítarfjör og söngur og  loks dansi dans :) þarf partý eitthvað fleira? Svo hélt ég útskriftarboð á sunnudeginum og fékk fáránlega fullt af frábærum gjöfum, shitturinn :p hér kemur upptalning sem bara er gaman af ;) hehe; 10 þús frá Litla-Garðs gengi + 10 þús frá ömmu og afa Árgerði = Sími sem ég keypti mér, hrikalega flottur!! 15 þús frá Ármanni brós (klikkaður) + 10 þús frá Sæsa brós (klikkaður) = Geðveik hvít buxnadragt og tveir bolir!! 7 þús frá Huldu frænku, gullhálsmen (ístað, mjög flott) frá Ásbirni og fjölsk, geðveika risastyttu frá Gerðu og Stebba, kerti og blóm frá Haffa og Hönnu, geðveika cintamani peysu og GEÐVEIKA blýhandsteiknaða mynd af mér og Þrym frá Kidda mínum, blóm frá tengdó og takið eftir .... dúmm dúmm frá mömmu og pabba fékk ég BÍL takk fyrir kærlega :D 1994 Mitsubishi Lancer, 4WD og kúla!! (get dregið hestakerru!!) Hvorki meira né minna!! Takk fyrir mig allir saman!! :haha:

Svo er bara sumarvinnan hafin og nóg að gera ... !! Ræs kl 6.30 á morgnana þannig að ég ætla að pilla mér í háttin !! :) Bið að heilsa ykkur esskunar og verið áfram dugleg að láta heyra í ykkur :D

Hilzen Ásdís dekurrófa ;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

15.05.2006 20:18:18 / asdishelga

Jæja gott fólk

Jæja þá er kominn tími á smáááááá blogg er haggi? Sorry undanfarnar vikur hafa ekki verið þær skemmtilegustu í lífi mínu ... En þetta er allt að lagast, ég fer bráðlega bara að sætta mig við að Þrymsi ástin mín er farinn á hinar endanlegu grænu lendur og er vonandi bara hamingjusamur þar!!

Prófið mitt, lokalokaloka stóra prófið var síðasta föstudag. Hmmm, það gekk alveg ágætlega held ég. Fæ ekkert að vita einkunnina fyrr en næsta laugardag (TAKA MANN AF TAUGUM) en Toni sagði mér að þetta hefði bara gengið vel og ég hefði tekið hátt próf og það væri allt sem ég þyrfti að vita í bili þannig að ég reyni mitt besta að slaka á og bíða róóóóóóóleg eftir einkunninni. Að klára dagbókarhelvítið var svo allt annar hausverkur... sussumbía maður!! Það var LEIÐINLEGT!! En útskriftin er á laugardag og þá útskrifast ég sem tamningarmaður/kona og þjálfari og get gengið í Félag Tamningarmanna .. Sjúbbí dei .. hehe ;)

Svo ætla ég að halda smá útskriftar"veislu" á sunnudaginn, mamma og pabbi ætla að koma og sjá stelpuna útskrifast þannig að ég ætla að baka nokkrar kökur eða grilla eða eitthvað á sunnudaginn fyrir nánustu ;) bara næserí og læti! Svo allra nánustu vinir, ættingjar og kunningjar, ef þið eigið leið um Eyjafjörðinn á sunnudag þá megið þið bjalla í mig og jafnvel koma við og fá ykkur kökubita ;)

Hmm, fleiri fréttir, ég keppti á íþróttamóti þarsíðustu helgi og það gekk býsna vel, var á Stirni sem ég var með í þjálfunarhestunum og endaði í öðru sæti í fjórgangi og var bara sátt við það. Hann var ekki alveg nógu öruggur á yfirferðinni, hefði blandað mér meira í toppslaginn og líklega haft betur ef það hefði verið í jafngóðu lagi og allar hinar gangtegundirnar ;)

En held þetta sé komið í bili og bið bara að heilsa ykkur ;)

Hilzen Ásdís


» 7 hafa sagt sína skoðun

20.04.2006 09:05:53 / asdishelga

Þrymur frá Teigi f: 06.1998 d: 04.2006 - minningargrein

Jæja gott fólk, dagurinn í gær 19.apríl er sá svartasti sem ég hef gengið í gegnum í mörg ár. Gæðingurinn, vinur minn og félagi Þrymur frá Teigi fótbrotnaði og þurfti að fella hann. Ætla að segja ykkur sögu hans hérna og heiðra minningu besta vins míns! :cry:

Þrymur frá Teigi rauður f:1998, móðir Komma frá Árgerði, faðir Hjörvar frá Árgerði:

Pabbi eignaðist Þrym árið 2000 ásamt öðrum fola í vöruskiptum, lét fyrir þá tjaldvagn. Þá var Þrymur 2ja vetra montrass sem brokkaði um öll tún á svifmiklu brokki og heillaði alla sem hann sáu. Pabbi gaf mér svo fjórðungshlut í honum árið 2002 og þar hófst saga okkar Þrymsa míns. Hann óx úr grasi og var svo frumtaminn annað hvort á fjórða eða fimmta vetur, man það ekki alveg og sá ræktandi hans um verkið, Biggi í Teigi. Hann var mjög klárgengur framan af en þegar líða tók á árið 2003 var hann varið alveg að tölta. Vorið 2004 tókum við pabbi alveg við honum og þjálfuðum hann saman það árið og reyndum dálítið fyrir okkur í keppnum en hesturinn enn ekki fullmótaður. Það ár fór ég svo í inntökupróf fyrir Hóla og komst inn og tók auðvitað félaga minn með mér. Það gekk alveg hreint ágætlega og kom hann mér þá á óvart því hann reyndist alveg fullkominn í þetta hlutverk, nánast frá fyrsta degi höfðu kennararnir orð á því hve hann lagði sig mikið fram til að gera vel og rétt fyrir mig. Við kláruðum fyrsta árið saman og komum mun sterkari út aftur. Svo var ég með hann um sumarið og keppti á honum eins og ég gat með fínasta árangri og það sumar ákváðu foreldrar mínir að ég fengi hann í afmælisgjöf einungis því við vorum svo miklir félagar og hefðum náð svo langt saman en með því skilyrði að hann yrði ALDREI seldur og ég ætti að eiga hann alltaf (svona til að leggja áherslu á verðmæti hans var hann metinn á c.a milljón). Þetta var auðvitað stærsta og mesta gjöf sem ég mun nokkurn tíma á ævi minni fá. Svo fékk hann frí síðastliðið haust og var tekinn inn í janúar með mikil plön fyrir árið 2006, nú hann fyrst að verða virkilega góður, að verða 8 vetra í flottu formi endalaust að bæta sig. Stefndi með hann á landsmót og svo í inntökupróf fyrir þriðja árið á Hólum í ágúst. En að morgni 19.apríl hrundu allir draumar mínir, hann hafði fest sig í innréttingum í sparihúsinu þar sem hann var einn í safnstíu (ætla ekki að fara nánar út í það) með þeim afleiðingum að efri leggur vinstri framfótar fór alveg í sundur og jafnvel á fleiri en einum stað þannig að ekki var neinn sjéns fyrir hann. Þetta var mjög ljótt slys og það var hræðilegt að horfa upp á hann svona kvalinn. En hann var svæfður í gærmorgun og svo grafinn í Árgerði í höfðingjagrafreit þeirra. Og þar með farinn að eilífu og ég varla enn búin að fatta þetta, þið sem eruð ekki í hestum og jafnvel skiljið ekki viðbrögð mín ímyndið ykkur einhvern besta vin ykkar sem þið viljið ekki missa. Þetta er bara svo svakalega ömurlegt að þið trúið því ekki og ég er án gríns í rusli og verð það líklega næstu vikur, sorry ef ég blogga ekki alveg í bráð.

En svo ég komi nú með einn ljósan punkt í þessu myrka minningarbloggi þá fundu amma og afi svo til með mér í gær að missa gæðinginn minn svona hryllilega að þau gáfu mér hest, klár á 7 vetur undan Markúsi, það kemur í ljós hvernig hann kemur út :) takk amma og afi, bót á hræðilegum degi!!

Jæja bið að heilsa ykkur með tártauma niður vanga ... Ásdís Þryms-lausa :cry:


» 11 hafa sagt sína skoðun

06.04.2006 19:11:59 / asdishelga

Hey beibís

Hæmms ... míns is back ;) það er ferlega mikið að gera hjá konunni og því eins og ég nefndi í síðasta "bloggi" verð ég að biðja um smá þolinmæði ;) og allt sem ég fæ er þegið með þökkum og ég bið ykkur um að gefast ekki upp á mér elskurnar mínar ...

Ætla að lífga aðeins upp á síðuna, setja inn nýja könnun, nýjan lit og læti :D bara fyrir ykkur ástirnar mínar!!

En það hefur ýmislegt á daga mína drifið síðan ég gaf mér síðast tíma til að blogga, hmmm, eitthvað ekki hestatengd fyrir Margréti mína sem kvartaði svo siðprúðlega í gestabókinni minni ;) hehe jamm míns er að koma heim um páskana og hlakka mikið til, kem á skírdag og fer annan í páskum! :D ógeðslega gaman, og ef einhver nobbari veit hvað er um að vera djammlega séð um páskana endilega tjáið ykkur í kommentunum. :)

En um síðustu helgi skellti ég mér í helgarferð á krókinn, löngu kominn tími til... fór að heimsækja kallinn eins og góðri kærustu sæmir ;) jamm jamm konan er komin með kall, more info later hehehe ;) það var mjög gaman og allt gott frá því að segja!! gerðum innrás til Kristínar og Ara og skemmtum okkur konunglega, takk fyrir okkur :)

Hmm, hmm er eiginlega alveg tóm um fleiri sem snertir ekki hross svo að hér kemur hrossadálkurinn:

Frumtamningarprófið gekk alveg ágætlega, ýmislegt sem var mér alls ekki í hag því miður, dómarinn missti af fluginu og prófinu frestað, veiktist náttla í 8 daga rétt fyrir próf, prófdagurinn kaldasti dagurinn á árinu og tryppin öll orðin mjög snögg og allt eiginlega í kúk en ég náði ágætlega og geng nokkuð sátt í burt miðað við aðstæður ;) svo eru þjálfunarhestarnir byrjaðir og ég er með fimm mjög spennandi verkefni þar, einn bráðefnilegan 5v. stóðhest undan Krafti, 8v. fjórgangara sem er flottur keppnishestur nú þegar en ekki alveg gallalaus ;), 6v. hryssu undan svarti bráðefnilega, 7v. alhliða (lullara) sem verður mjög vakur einn góðan veðurdag, og eina undan Stormi frá Bjarnanesi, hrikalega klárgenga, ekki gangsetta og frekar mikið spennta! Mjög fjölbreytt og skemmtileg hross ;)

Jæja pæja vona að þið urðuð ekki fyrir vonbrigðum með "come cack-ið" mitt ;) reyni mitt allra besta að láta ekki líða eins langt í næsta blogg :) Hilzen ... Ásdís

P.s Allir að kjósa Snorra í Idolinu, hann er næsta Idol Íslands að mínu mati, geðveikur söngvari!! :D


» 7 hafa sagt sína skoðun

30.03.2006 15:36:49 / asdishelga

SOOOOOORRRRRRRYYYY mæ svítharts

gimmí a brake hérna ;) það eru svo margir staðir sem ég þarf að standa mig á og bara ógisslega mikið að gera ... só sorry en ég LOFA að blogga feitast um leið og ég get!!!! :D

Hilzen Ásdís


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.03.2006 16:11:19 / asdishelga

Hjéllú

Exskvís mí gott fólk fyrir lengstu bloggpásu sem ég hef tekið held ég bara ..

Málið er að ég er búin að liggja fárveik í næstum viku, hef bara sjaldan verið eins veik held ég, heiftarleg flensa, hélt engu niðri, hiti og allur pakkinn...

Það var búið að setja frumtamningarprófið hjá mér á miðvikudaginn 15.2 en þegar ég var enn með yfir 39° stiga hita á föstudag þá hringdi ég og reyndi að fá því frestað því ég á eftir að járna allt nema tvær framlappir.. og plús að shæna tryppin og allt allt sem átti að gera ...

Jæja hvað er búið að gerast síðan ég bloggaði síðast? Fór á Wig Wam og það var GEggJAÐ...

Tíkin hérna eignaðist 7 hvolpa, þvílíkar dúllur sko, fjórir voru svæfðir fljótlega en það á að reyna að gefa þrjá og við Nanna erum búnar að nefna þá Sjarma, Plútó og Pöndu hehe

Jæja hef ekki orku í meira, er svo gjörsamlega þróttlaus að ég get ekki gert rassgat ..

Hilzen Ásdís


» 12 hafa sagt sína skoðun

24.02.2006 16:19:54 / asdishelga

Well Well

Hælló fallega fólk :)

Þá er mín komin á heimaslóðir í orkusöfnun og afslöppun í sambland við hörkudjamm!! :) hrikalega ljúft!!

Bautamótið: Það gekk alveg býsna vel ;) það voru 71 keppandi þarna og ég var nr.67 í röðinni (ímyndið ykkur stressið!!) þ.e í þriðja síðasta holli , það voru tveir inn á í einu ;) en mér gekk ansi vel í forkeppninni og fékk 6,6 hjá einum dómara, 7,0 hjá öðrum og 7,2 hjá þriðja og það gerði 6,93 í aðaleinkunn og fimmta sæti í úrslit, þ.e efst inn í B-úrslit :D var mín auðvitað hæstánægð með það!! Svo komu úrslitin og þau gengu mjög vel, Bjössi Vatnsleysubóndi reyndar reið upp fyrir mig og ég endaði sjötta með 7,44 í einkunn með risabros á vör, engin skömm í að tapa fyrir Vatnsleysubóndanum og svo var Þrymsi minn alveg búinn á því eftir B-úrslitin þannig að við hefðum ekki getað sýnt okkar besta í A-úrslitunum hefðum við komist þangað ;)

Hér er mynd sem er tekin af www.skagastudio.com, það eru fleiri myndir þar ef einhverjum langar að sjá og líka á www.pedromyndir.is :D

Jæja, svo er bara tjútt annað kvöld og megastuðarí!! :)

Vonast til að sjá sem flesta, ALLIR Á BARINN ANNAÐ KVELD!! :d

Hilzen Ásdís


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 17
Dagsetning
23. febrúar 2012
Klukkan
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti